Slítur sundur friðinn 22. september 2005 00:01
Arnar Jensson lögreglumaður tjáði sig um svokallað Baugsmál í sjónvarpinu í gær. Orðræða hans þar var á köflum með slíkum endemum að maður efaðist um að þessi maður væri staddur á sömu öld og í sama veruleika og við hin. Margir hafa sjálfsagt séð þetta og heyrt en mig langar samt að staldra við fáein atriði, þar sem málið er mér skylt. Ástæða viðtalsins er augljóslega sú að yfirstjórn Ríkislögreglustjóra hefur ekki þolað þá gagnrýni, sem hún hefur hlotið í fjölmiðlum undanfarna daga. Vegna þess hefur sú ákvörðun verið tekin að senda Arnar lögreglumann út á akurinn svo þjóðin gæti öðlast „rétta" sýn á Baugsmálið. Það er greinilega ekki liðið að þessir vesalings einstaklingar, sem hafa verið sakborningar í ónýtri rannsókn RLS sl. þrjú ár æmti undan valdinu, þegar niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur um ónýti þessa máls liggur fyrir. „Sannleikanum" skal komið inn hjá þjóðinni. Í byrjun Kastljóssþáttarins var lögreglumaðurinn inntur eftir upphafi málsins og söfnun sakarefna í framhaldi þess. Þáttarstjórnandi, Sigmar Guðmundsson spurði: ´´Þannig að þið farið þarna inn og veltið við hverjum steini og skoðið á bak við hverja einustu ...´´ Og Arnar lögreglumaður svarar: ´´ Nei, nei, nei við fórum inn til þess að takast á við tiltekin tvö sakarefni en þegar við erum að rannsaka þau þá koma í ljós ýmis önnur atriði eins og til dæmis færslur milli reikninga, eins og til dæmis lánveitingar sem eru skráðar á viðskiptamannareikninga og svo framvegis. Eins og þið hafið séð í þessari ákæru og það er bara eðlileg þróun í málinu. Þetta er bara mjög hefðbundið og er ekkert sérstakt í þessu máli. Mjög algengt að svona gerist, svona verði sakarefni til og til þess er ákærandinn að rétta okkur af og meta er þetta nægilegt til þess að taka það upp eða ekki.´´ (leturbreyting mín). Ja, nú rífur í svo um munar! Starfa rannsóknarmenn lögreglunnar eftir öðrum lögum og reglum en aðrir landsmenn? Sannast enn orð Þorgeirs ljósvetningagoða „Það mun verða satt, er vér slítum í sundur lögin, að vér munum og slíta friðinn"? Lið lögreglunnar gerði leit í húsakynnum Baugs hf. vegna tveggja tilgreindra sakarefna og komst við þá iðju á snoðir um færslur á milli reikninga og lánveitingar sem skráðar voru á viðskiptamannareikninga. Líklega leituðu þeir með sömu áfergju og mælt er fyrir um í gömlum lagatexta Grágásar þar sem því er lýst hvernig leita skuli líkamsleifa í kirkjugarði sem á að færa, en sagt er þar að leitarmenn skuli: „ … leita svo beina sem þeir mundu fjár ef þar væri von í jörðu." Framhald málsins (hið þriggja ára langa rannsóknarmaraþon og ákæra sem hvorki sakborningar, verjendur né dómarar geta fest hendur á) var svo bara „eðlilegt" og mjög svo „hefðbundið" að mati lögreglumannsins. Fróðlegt væri að heyra hann færa rök fyrir þessum orðum. Hvenær varð það saknæmt eða tortryggilegt athæfi að færa færslur á milli reikninga og skrá lánveitingar á viðskiptamannareikninga? Hvað er þetta „og svo framvegis" sem lögreglumaðurinn dylgjar með? Allir sem þekkja hið minnsta til fyrirtækjareksturs og viðskipta vita það að millifærslur og færsla lánveitinga á viðskiptamannareikninga eru hvorttveggja allsendis löglegar ráðstafanir og ærið algengar. Ætli þeir séu ekki orðnir bara fáir Íslendingarnir sem aldrei hafa gert eða látið gera millifærslu? Við sem mest kynni höfum haft af Baugsmálinu svonefnda vitum hvers konar endileysa það er í heild sinni og þekkjum öll ólíkindin og útskryppisháttinn sem hafa einkennt það allt frá upphafi. Manni er því jafnan ekki hlátur eða glens í huga þegar þetta mál ber á góma. Hjákátleg frammistaða Arnars lögreglumanns í sjónvarpinu þótti mér þó í aðra röndina brosleg og eymdarlegur væll hans í dag undan þeirri gagnrýni sem hann og aðrir hjá RLS hafa orðið fyrir upp á síðkastið. Hvað mættum við þá ekki segja? Miðað við þau viðhorf sem birtust hjá Arnari lögreglumanni væri RLS áreiðanlega kærast að gefa út eina allsherjar ákæru á hendur öllum forráðamönnum félaga í landinu og hinum varhugaverðu endurskoðendum þeirra sem sitja við sveittir að skrifa upp á allar hinar saknæmu millifærslur. Þar sem hér verður sjálfsagt um nokkur þúsund manns að ræða væri gráupplagt að hafa réttarhöldin á Þingvöllum, hinum forna alþingisstað, en utan vébanda. Svo gæti vasavanur dómari fengið að dæma hyskið í útlegð.
Baugsmálið Fréttir Innlent Mest lesið Ný forysta Sjálfstæðisflokksins kjörin Innlent „Ótrúlegt“ að tapa með nítján atkvæðum Innlent Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður Sjálfstæðisflokksins Innlent Hundruð Bandaríkjamanna mótmæltu í nafni Úkraínu Erlent Sagan skrýtna af nafngift Air Atlanta-flugfélagsins Innlent Tvær bílveltur með stuttu millibili Innlent Hvernig skiptast fylkingarnar? Innlent Holtavörðuheiðinni lokað Innlent Skrifuðu undir 400 milljarða króna lán til vopnaframleiðslu Erlent Arndís Anna kjörin formaður Siðmenntar Innlent Fleiri fréttir Gjöf Gorbatsjovs til Davíðs Oddssonar seld á eina og hálfa milljón „Algjör gjörbreyting á alþjóðakerfinu“ Ný og glæsileg lögreglustöð í Vík í Mýrdal Naumur sigur formanns, fundur Evópuleiðtoga og saursýni í kvöldfréttum Tvær bílveltur með stuttu millibili „Kerfið hefur ekki verið mjög burðugt fram til þessa“ „Ég lofa ykkur því að ég skal leggja mitt af mörkum“ Arndís Anna kjörin formaður Siðmenntar „Sigur er alltaf sigur“ Ósáttur við gjaldtöku yfir nýja Ölfusárbrú „Ótrúlegt“ að tapa með nítján atkvæðum Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður Sjálfstæðisflokksins Holtavörðuheiðinni lokað Formannskjör Sjálfstæðisflokksins og fundur leiðtoga í Lundúnum Ný forysta Sjálfstæðisflokksins kjörin Landsfundur, alþjóðamál og Efling á Sprengisandi Kvikusöfnun heldur áfram Guðni stóð vaktina á Háskóladaginn Sagan skrýtna af nafngift Air Atlanta-flugfélagsins Flæddi í fleiri kjallara og grjót á víð og dreif á Seltjarnarnesi Nanna hneykslast á gervigreindarmyndum í nýjum þáttum RÚV Lögblindur prestur spilar snóker og bridds eins og ekkert sé Staðan snúnari eftir „fyrirsátur“ í Hvíta húsinu Fordæmalaus staða milli bandalagsríkja og spennan magnast á landsfundi „Hver stendur í vegi fyrir því? Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur“ Ræða Guðrúnar: Opnara forystukjör, orðljót verkalýðshreyfing og látins félaga minnst Um fimmtíu viðburðir í boði á Vetrarhátíð við Mývatn Vandasamt starf að stýra 2100 manna fundi „Stoðir réttarríkisins eru ekki í hættu“ Gular viðvaranir gefnar út Sjá meira