Innlent

Skemmdarvargar á sveimi

Skemmdarvargar voru á sveimi í Reykjanesbæ í gær en lögregla fékk tvær tilkynningar um eignaspjöll á bifreiðum. Víkurfréttir greina frá því að rétt fyrir klukkan átta í gærmorgun hafi lögregla fengið tilkynningu um eignaspjöll á bifreið utan við íbúðarhúsnæði á Hringbraut í Keflavík. Búið var að brjóta afturrúðuna í bifreiðinni með því að henda rauðamölsgrjóti í hana. Hin bifreiðin var fyrir utan Myllubakkaskóla. Búið var að setja dæld á afturhluta bifreiðarinnar ofan við annað afturljósið, auk þess sem afturljósið hafði verið brotið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×