Innlent

Sannleiksgildið enn í rannsókn

Lögreglan í Reykjavík rannsakar enn sannleiksgildi frásagnar átta ára stúlku sem greindi frá því á miðvikudag að maður hefði tælt hana upp í bíl, farið með hana í verslun þar sem hann tók af henni myndir og skilað henni svo aftur. Eins og fram er komið sáust engar myndir í öryggismyndavélum verslunarinnar sem stúlkan segir að maðurinn hafi farið með sig í en ekki er útilokað að hana misminni eitthvað og er rannsókn því haldið áfram. Enginn sérstakur mun liggja undir grun um verknaðinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×