Innlent

Barinn á skemmtistað

Karlmaður leitaði á náðir lögreglunnar í Keflavík og kvaðst hafa orðið fyrir líkamsárás á skemmtistað þar í bæ rétt fyrir klukkan sex í morgun. Manninum var bent á að fara á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til að fá áverkavottorð og kæra árásina að því loknu. Maðurinn hafði ekki lagt fram kæru nú á tíunda tímanum. Annar maður í Keflavík fékk að gista fangageymslur lögreglunnar eftir að fíkniefni fundust heima hjá honum og enn öðrum var hjálpað heim, þegar að hann fannst áfengisdauður eftir næturbröltið. Þá voru tveir handteknir fyrir fylleríslæti og slagmál á Selfossi í nótt. Mennirnir gistu fangageymslur en ekki hefur verið ákveðið hvort mönnunum verði sleppt þegar þeir vakna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×