Innlent

Jón Steinar tjáir sig ekki

Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari sagði í samtali við fréttastofu í dag að það væri alveg sama hversu mikið hann yrði spurður um umfjöllun Fréttablaðsins í morgun, hann myndi ekki tjá sig um það. Jónína Benediktsdóttir svaraði ekki skilaboðum. Jóhannes Jónsson í Baugi, einn aðalsakborninganna í málinu gegn forsvarsmönnum Baugs, er staddur erlendis en hann sagðist vera dolfallinn yfir þessum fréttum og væri að melta þær. Baugsmenn hefðu ekki haft hugmynd um að þessir menn hefðu tekið þátt í undirbúningi málaferlanna og kæmi það honum sérstaklega á óvart að sjá Styrmi Gunnarsson í þeim hópi. Hann hefði hins vegar lengi vitað að það andaði köldu til Baugs frá Kjartani Gunnarssyni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×