Innlent

Dælubílar á ferð og flugi

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins átti annasama nótt aðfaranótt laugardags. Sjö sinnum voru dælubílar á ferðinni en aldrei þó í alvarleg útköll. Útköllin voru hins vegar mjög fjölbreytt, meðal annars vegna eldsvoða í bifreið, reyk frá þurrkara og íkveikju í rusli við verslunarmiðstöð. Alvarlegast var útkall vegna potts sem skilinn hafði verið eftir á eldavél í Hafnarfirði. Slökkviliðsmenn brutust inn og fundu þar fyrir mann sofandi. Hann sakaði ekki og var íbúðin reykræst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×