Innlent

Þjófur gripinn glóðvolgur

Brotist var inn í mannlausa íbúð á Dalvík síðastliðinn fimmtudag. Tilkynnt var um innbrotið um klukkan tvö síðdegis og um sjöleytið sama kvöld var málið upplýst. Maður hafði brotist inn í íbúð og meðal annars tekið þar myndavél og tölvubúnað. Til þjófsins sást við athæfið og vitni gátu gefið greinargóðar lýsingar á honum sem leiddu til handtöku hans nokkrum klukkustundum síðar. Þjófurinn er búsettur á Dalvík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×