Innlent

Festu jeppabifreið

Þrjár ungar konur festu jeppabifreið sína á Fjallabaksleið nyrðri á laugardagskvöld. Konurnar ætluðu austur fyrir Landmannalaugar að Eldgjá en festu bílinn. Þær brugðu á það ráð að skilja eftir miða í bílnum og sögðust þar hafa farið gangandi að Landmannalaugum en konurnar óttuðust að ekki væri hafin leit að þeim. Björgunarsveitarmenn frá Hellu óku fram á konurnar þrjár á gangi og höfðu þær gengið um tíu kílómetra leið. Þær voru þó vel búnar en frost var um tíu stig. Vill lögregla á Hvolsvelli koma þeim skilaboðum á framfæri að í svona kringumstæðum sé rangt að yfirgefa bifreið sína heldur skuli fólk halda kyrru fyrir í bílnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×