Innlent

Gögnin máttu fara til fjölmiðla

Jón Gerald Sullenberger segist hafa viljað að gögn um mál sitt gegn Baugi kæmust í fjölmiðla og kveðst ekki frá því að hann hafi sent Jóni Steinari Gunnlaugssyni tölvupóst þar sem hann heimilaði lögmanninum að áframsenda Styrmi Gunnarssyni, ritstjóra Morgunblaðsins, gögn um mál sitt. Jón Gerald segir að allt sem Jón Steinar gerði fyrir sig hafi hann gert með sínu samþykki. Í Fréttablaðinu í dag segir að Jón Steinar hafi áframsent gögn málsins án samþykkis Jóns Geralds.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×