Innlent

Rannsókn enn í gangi

Enn stendur yfir rannsókn lögreglu á slysi sem varð á Viðeyjarsundi tíunda þessa mánaðar þegar skemmtibátur steytti á Skarfaskeri með þeim afleiðingum að tvö fórust. Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn sagði ekkert nýtt að frétta af rannsókninni, en þó hyllti nú undir lok hennar. Hann bjóst við að mál tækju að skýrast þegar nær drægi vikulokum. Í slysinu komust eigandi bátsins og eiginkona hans af sem og tíu ára sonur þeirra lítið meiddur. Maðurinn tvílærbrotnaði og konan rifbeinsbrotnaði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×