Innlent

Íkveikjur í rannsókn

Ekki hafa komið fram nýjar vísbendingar í rannsókn lögreglu í Reykjavík á íkveikjum í höfuðborginni fyrstu helgina í september. Þá er grunur um íkveikju á að minnsta kosti fjórum stöðum í borginni, þar af tvisvar á sama stað með sólarhrings millibili í skemmu við Fiskislóð. Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir rannsókn halda áfram, en aldrei sé að vita í málum sem þessum hvenær frekari upplýsingar rekur á fjörur lögreglu. Þá segir hann að ekki hafi komið upp fleiri íkveikjur í borginni sem lögregla telji að tengist þessum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×