Innlent

Hafi hótað Jóhannesi í Bónus

Jónína Benediktsdóttir krafðist þess að Jóhannes Jónsson í Bónus keypti líkamsræktarstöðina Planet Pulse af sér ella myndi hún birta gögn sem hún hefði um Baug að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag. Blaðið birtir tölvupóst sem Jónína sendi Tryggva Jónssyni, þáverandi forstjóra Baugs. Þar segir hún orðrétt: „Þetta er ekki hótun heldur sjálfsbjargarviðleitni þriggja barna móður sem á að lýsa sig gjaldþrota á morgun en átti 200 milljónir þegar hún þvældist inn í mestu drullusokkafjölskyldu í heimi.“



Fleiri fréttir

Sjá meira


×