Innlent

Varað við hvassviðri í Búðardal

Lögregla í Búðardal varar við hvassviðri og krapa í Svínadal, en þar varð umferðarslys í morgun þegar tómur fjárflutningabíll fauk út af veginum og á hliðina. Tveir slösuðust í veltunni og voru þeir fluttir á Heilsugæslustöðina í Búðardal til aðhlynningar. Þá fauk lögreglubíllinn út af veginum á slysstað án þess að velta og er hann að sögn lögreglu óskemmdur. Fjárflutningabíllinn er enn á slysstað en lögregla er nú á leið að fjarlægja hann. Lögregla segir mjög hvasst og sviptivindasamt í Svínadal og þegar við bætist krapi á vegi eru aksturskilyrði mjög varasöm.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×