Sport

Leikjum lokið í Meistaradeildinni

NordicPhotos/GettyImages
Manchester United tryggði sér nauman sigur á Benfica á elleftu stundu í Meistaradeildinni nú áðan. Það var Ryan Giggs sem kom heimamönnum yfir rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, en gestirnir jöfnuðu metin á 59. mínútu. Það var svo markahrókurinn Ruud van Nistelrooy sem tryggði liði United sigurinn fimm mínútum fyrir leikslok, en sigur enska liðsins var ekki mjög sannfærandi. Pananthinaikos frá Grikklandi sigraði Werder Bremen 2-1 á heimavelli. Gonzales skoraði fyrsta mark heimamanna úr vítaspyrnu á fimmtu mínútu og aðeins þremur mínútum síðar kom Mantzios þeim í 2-0. Miroslav Klose minnkaði muninn fyrir þýska liðið á 41. mínútu, en lengra komust þeir ekki. Barcelona vann auðveldan sigur á Udinese frá Ítalíu 4-1, en Udinese voru einum manni færri frá 49. mínútu eftir að Vidigal var vikið af velli. Það kom þó ekki mikið að sök fyrir þróun leiksins, því þegar þetta gerðist var Barcelona með 3-1 forystu. Ronaldinho skoraði þrennu í leiknum, þar af mark úr vítaspyrnu á lokasekúndunum og Deco skoraði eitt mark. Juventus vann sannfærandi sigur á Rapid Vín 3-0, þar sem framherjarnir Mutu, Trezeguet og Ibrahimovic skoruðu eitt mark hver. Bayern Munchen lagði Club Brugge 1-0 með marki frá varnarmanninum Demichelis á 33. mínútu og Thun vann góðan sigur á Spörtu frá Prag, þar sem Hodzic skoraði sigurmark heimamanna einni mínútu fyrir leikslok. Arsenal vann gríðarlega mikilvægan sigur á Ajax í Amsterdam, 2-1. Ljungberg kom Arsenal yfir strax í byrjun og Pires bætti við öðru marki úr vítaspyrnu á 69. mínútu. Heimamenn minnkuðu muninn aðeins tveimur mínútum síðar með marki frá sænska leikmanninum Rosenberg, en lengra komst Ajax ekki og niðurstaðan sigur Arsenal, sem byrjar vel í keppninni í ár. Að lokum gerðu Lille og Villareal markalaust jafntefli í Frakklandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×