Innlent

Braut rúður í átta bílum

Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðbundið í tvö ár, í Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun vikunnar. Dóminn hlýtur maðurinn fyrir margvísleg þjófnaðarbrot, auk þess sem hann var í eitt sinn gripinn með tæpt gramm af marijúana á sér. Í september í fyrra braust maðurinn inn í átta bíla við Freyjugötu í Reykjavík, en hann braut í þeim öllum rúðu og stal svo úr sumum. Fjórir gerðu kröfu um bætur fyrir rúðubrotin og þurfti maðurinn að greiða þremur þeirra alls, rúmar 81 þúsund krónur með vöxtum, en einni kröfunni var vísað frá vegna misræmis milli málsskjala og ákæru.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×