Innlent

Ný lögreglustöð

Lögreglan í Reykjavík opnar í dag nýja lögreglustöð í Álfabakka 12 í Mjóddinni í stað stöðvarinnar í Völvufelli. Með þessum breytingum segist lögreglan færa sig nær íbúum Breiðholts, enda með nýju stöðina í aðal þjónustu- og verslunarkjarna Breiðholts. "Aðalvarðstjóri hefur verið skipaður til að veita stöðinni forstöðu og auglýst hefur verið eftir lögreglumönnum sem eingöngu munu vinna í Breiðholti. Auk þess er hverfislögreglumaður áfram starfandi í Breiðholti," segir á vef lögreglunnar, en með þessu er tekið upp sama fyrirkomulag á löggæslu og verið hefur í Grafarvogi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×