Sport

Jafnt hjá Liverpool og Chelsea

NordicPhotos/GettyImages
Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Enn er markalaust á Anfield þar sem Liverpool tekur á móti Chelsea í stórleik kvöldsins. Staðan í öðrum leikjum er sú að Real Madrid hefur yfir 1-0 gegn Olympiakos, þar sem Raul skoraði mark heimamanna snemma leiks, Porto hefur yfir 2-1 gegn Artmedia Bratislava, Fenerbahce hefur yfir 1-0 gegn PSV, Olympique Lyon hefur yfir 1-0 á útivelli gegn Rosenborg og staðan hjá Schalke og AC Milan er 1-1. Þá er enn markalaust í leikjum Anderlecht og Betis annarsvegar og í leik Inter og Rangers hinsvegar. Hægt er að fylgjast með gangi mála á Boltavaktinni á íþróttasíðunni hér á Vísi, þar sem mörkin smella inn um leið og þau eru skoruð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×