Innlent

Fleiri ætla í bótamál

Heldur hefur fjölgað í hópi útgerðarfélaga sem hyggjast sækja bætur fyrir dómi vegna ólöglegs samráðs olíufélaganna. Einungis eitt félag hefur þó enn lýst þeirri fyrirætlan sinni opinberlega, en það er Guðmundur Runólfsson hf. á Grundarfirði. Samkvæmt heimildum blaðsins verður hvert félag að gera upp við sig sjálft hvort það vilji í mál við olíufélögin, en svo verða málin rekin saman með aðstoð Landssambands íslenskra útvegsmanna. Einn heimildarmaður blaðsins taldi að vænn hópur útgerðarfélaga ætlaði sér í mál vegna samráðsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×