Sport

Jóna Guðlaug samdi við Cannes

Blaklandsliðskonan unga og efnilega, Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir úr Þrótti á Neskaupsstað, hefur gert sjö ára samning við stórliðið Racing Club de Cannes í Frakklandi. Jóna er aðeins sextán ára gömul og mun líklega spila með unglingaliði Cannes fyrst um sinn, en hún þykir mikið efni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×