Innlent

Hrappar féfletta fólk

"Þeir hringdu í mig, rosalega ­ýtnir og frekir eftir að ég sendi póst út til að forvitnast um þetta," segir Karen Rut Konráðsdóttir, sem fékk tilkynningu um stóran vinning frá erlendu svikalottói. Karen til mikillar furðu fékk hún ­senda tilkynningu um að hún hefði unnið „þann stóra“ í alþjóðlegu lottói. Þar var ekki um neina smáræðis upphæð að ræða, því vinningurinn var sagður 1,5 milljónir evra, sem samsvarar 110 milljónum íslenskra króna. Í bréfinu var sagt að hún þyrfti aðeins að inna af hendi smá viðvik og þá yrði vinningurinn greiddur út innan 72 klukkustunda. Hún ætti bara að senda út afrit af vegabréfi sínu eða ökuskírteini og gefa upp númer á bankareikningnum sínum. "Þetta náði aldrei neitt lengra því ég sleit bara samtalinu," segir Karen Rut og varar fólk við að láta glepjast af svona svikahröppum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×