Innlent

Brotist inn í tölvuverslun

Brotist var inn í tölvuverslun í austurborginni um fimmleytið í nótt og þaðan stolið að minnsta kosti þremur fartölvum. Þjófavarnakerfi fór í gang en þrátt fyrir það voru þjófarnir á bak og burt þegar öryggisverðir og lögregla komu á vettvang örskammri stund síðar. Bendir því allt til þess að þjófarnir hafi verið búnir að skipuleggja ránið og að þeir hafi verið eldsnöggir inni í versluninni og haft greiða undankomuleið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×