Innlent

Lögregla leitar enn brennuvargs

Lögregla rannsakar enn tilurð nokkurra bruna sem urðu í Reykjavík fyrstu helgina í september. Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir ekkert að frétta af rannsókn málsins enn sem komið er. Maður var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur þessa helgi eftir að kveikt var í nálægt skemmtistaðnum Pravda í Lækjargötu. Sá var dauðadrukkinn og grunaður um að hafa kveikt eldinn. Ómar Smári segir að maðurinn hafi verið yfirheyrður daginn eftir og síðan sleppt. Hann vill ekki segja til um hvort maðurinn hafi verið hreinsaður af íkveikjunni eða hvort verið geti að sami maður, eða menn, hafi kveikt í á öllum stöðum þessa helgi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×