Innlent

Slapp ómeidd úr eldsvoða

Sautján ára stúlka slapp ómeidd út úr logandi kjallaraíbúð í fjölbýlishúsi á Selfossi í gærkvöldi en mikill eldur var í íbúðinni þegar slökkvilið kom á vettvang. Allur stigagangurinn var rýmdur þar sem reykur barst um en slökkvistarf gekk vel. Miklar skemmdir urðu innanstokks í íbúðinni af eldi og reyk og reykræsta þurfti aðra íbúð í húsinu. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá kerti í stofunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×