Innlent

Komu í veg fyrir eldsvoða

Starfsmönnum Skinneyjar-Þinganess á Höfn í Hornafirði tókst fyrir snarræði að koma í veg fyrir eldsvoða undir kvöld í gær þegar kviknaði í stórri rafmagnstöflu í fiskverkunarhúsi, rétt í þann mund sem vinnu var lokið. Þeir voru á leið út þegar þeir sáu fyrir tilviljun reyk leggja frá töflunni og gátu strax slökkt hann með handslökkvitæki. Slökkviliðið reykræsti svo húsið. Fyrir nokkrum árum varð stórbruni í sama húsi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×