Innlent

Fundað um fjárnámskröfu

Lögmenn Jóns Ólafssonar og Hannesar Hólmsteins funda nú um fjárnámskröfu Jóns á hendur Hannesi í húsakynnum sýslumannsins í Reykjavík. Hannes hefur lýst því yfir að hann muni láta lögmann sinn gera þá kröfu að fjárnámskröfu á hendur sér verði vísað til héraðsdóms. Þar munu lögmenn beggja væntanlega takast á um hvort einkamál Jóns fyrir breskum dómstólum hafi verið flutt á réttu varnarþingi. Lögfræðiprófessorar segja milliríkjasáttmála kveða á um gagnkvæma viðurkenningu dóma í einkamálum en eru sammála um að deilan muni snúast um hvort varnarþingið hafi með réttu átt að fara fram í London.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×