Innlent

15 mánuðir fyrir nauðgunartilraun

MYND/E.Ól
Maður á þrítugsaldri var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í Hæstarétti í dag fyrir tilraun til nauðgunar. Hann réðst á jafnöldru sína á réttarballi í Biskupstungum haustið 2004 og beitti hana talsverðu ofbeldi og hafði í hótunum við hana. Tilviljun réð því að hann kom ekki fram vilja sínum og fullframdi brotið, en maður kom aðvífandi og við það flúði hann af vettvangi. Hinn dæmdi gaf sig síðar fram við lögreglu og játaði brott sitt. Hann hefur enn fremur greitt fórnarlambi sínu miskabætur. Að þessu virtu þótti refsing hans hæfileg 15 mánaða fangelsisvist.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×