Innlent

Fjárnám gert í eignum Hannesar

Fjárnám var gert í dag í eignum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, sem breskir dómstólar dæmdu fyrir meiðyrði í garð Jóns Ólafssonar kaupsýslumanns. Dómstóll í Englandi dæmdi Hannes nýlega til að greiða Jóni Ólafssyni 12 milljónir króna í skaðabætur fyrir meiðandi ummæli  um að Jón hefði auðgast með ólöglegum hætti. Hannes segir að þetta hafi verið fyrir sex árum og hann minni á að það hafi verið forsíðufréttir í blöðum um það að Jón Ólafsson hefði hagnast á ólöglegri fíkniefnasölu. Hann hafi því eingöngu verið að upplýsa hverju hefði verið haldið fram um Jón og hann hafi sjálfur ekki tekið neina efnislega afstöðu til málsins vegna þess að hann ætlaði ekki að gera sig sekan um meiðyrði. Krafist var fjárnáms í eigum Hannesar, sem nýlega seldi félagi í eigu Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, hús sitt við Hringbraut. Hannes býr áfram í húsinu og greiðir leigu. Fjárnámskrafan var tekin fyrir hjá sýslumanni Reykjavíkur í dag. Háværar umræður fóru fram milli lögmanna hvors um sig inni á skrifostu fulltrúa sýslumannsins þar sem setið var í á fjórðu klukkustund. Svo fór að tekið var fjárnám í veðskuldabréfi sem Hannes þarf að leggja fram. Aðspurð hvers vegna málið hafi verið sótt í Bretlandi þegar ummælin hafi fallið hér á landi og þau hafi íslenskur maður látið falla um annan íslenskan manna segir Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður Jóns Ólafssonar, að í þessu tilviki sé aðallega hægt að benda á að ummælin séu sett á netsíðu á ensku, Jón Ólafsson búi í Bretlandi og ummælin hafi verið meiðandi fyrir hann þar í landi. Heimir Örn Herbertsson, lögmaður Hannesar Hólmsteins, segir að hann hafi mótmælt ákvörðunum sýslumanns og að þeim verði öllum skotið til dómstóla. Enn fremur segir Heimir að þess verði freistað að fá málið upp tekið fyrir breskum dómstólum á ný.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×