Innlent

Málið tekið upp aftur?

Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor er nú að láta lögmann sinn í Englandi kanna hvort hann geti fengið meiðyrðadóm Jóns Ólafssonar á hendur sér tekinn upp aftur fyrir dómstólum þar. Jón kveðst sömuleiðis vera að skoða hvort ummæli Hannesar í hádegisfréttum Bylgjunnar á miðvikudag hafi verið brot á lögbanni sem breskir dómstólar settu á að Hannes endurtæki ummæli sín. Í gær var gert fjárnám í eigum Hannesar til að knýja á um greiðslur á sekt sem hann var dæmdur til að greiða í breskum dómstólum fyrir meiðyrði í garð Jóns. Dómstóll úrskurðaði að Hannes skyldi greiða jafnvirði tólf milljóna króna fyrir þau ummæli að alþekkt væri að Jón hefði auðgast með ólöglegum hætti. Hannes seldi nýlega hús sitt til fasteignafélags í eigu Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, en býr þar enn og greiðir leigu. Því var ekki hægt að taka fjárnám í fasteigninni. Að lokum fór því svo að fallist var á að Hannes legði fram veðskuldabréf fyrir fjárnámsupphæðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×