Innlent

Vill fimm milljónir

Jónína Benediktsdóttir hefur stefnt Fréttablaðinu fyrir að birta upplýsingar upp úr einkatölvupósti sem Fréttablaðið hafði undir höndum. Jónína krefst fimm milljóna króna í miskabætur og að Kára Jónassyni, ritstjóra blaðsins, verði gerð ítrasta refsing fyrir að birta upplýsingar úr gögnunum sem sýslumaðurinn í Reykjavík gerði upptæk á dögunum. Í stefnunni er auk þess krafist að lögbann við birtingu tölvupósts Jónínu verði staðfest svo og sú ákvörðun sýslumanns að gera gögnin upptæk. Stefnan verður lögð fram í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudaginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×