Innlent

Slys á Hellu

Kona og maður á sjötugsaldri voru flutt á sjúkrahúsið á Hellu eftir að jeppi með pallhýsi sem þau voru farþegar í keyrði út af veginum á Hvolsvelli upp úr klukkan níu í gærmorgun. Brákaðist konan á fæti. Fengu þau bæði að fara heim að lokinni skoðun. Ökumaður bílsins, sem er einnig á sjötugsaldri, slapp ómeiddur. Mikil hálka var á veginum og var bíllinn mikið skemmdur eftir slysið. Að sögn lögreglunnar á Hvolfsvelli björguðu bílbeltin því að ekki fór verr.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×