Viðskipti innlent

Svafa aðstoðarforstjóri Actavis

Svafa Grönfeldt hefur tekið við nýju starfi sem aðstoðarforstjóri Actavis Group eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Svafa hóf störf hjá Actavis árið 2004 sem framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs en hún mun í nýju starfi samtvinna stefnu og innra skipulag samstæðunnar ásamt því að stýra verkefnum sem lúta að aukinni skilvirkni í rekstri. Svafa mun verða staðgengill forstjóra og talsmaður hans og mun áfram verða hluti af framkvæmdastjórn fyrirtækisins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×