Innlent

Lét ófriðlega á skemmtistöðum

Lögregla í Kerflavík þurfti í nótt að hafa afskipti af manni sem lét ófriðlega á skemmtistöðum í miðbæ Keflavíkur. Maðurinn mun hafa ráðist á annan mann á skemmtistað og slegið hann og var það tilkynnt til lögreglu. Þegar hún kom á vettvang var maðurinn á bak og burt og hafði þá farið á annan veitingastað. Þar handtók lögregla hann þar sem hann var við það að lenda í stimpingum við annan mann og var hann látinn gista fangageymslur á meðan hann róaði sig. Þá þyrfti lögregla að aðstoða mann sem féll á höfðið og skarst en hann mun hafa verið ölvaður. Auk þess stöðvaði Keflavíkurlögreglan tvo fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut, annar var á 125 kílómetra hraða en hinn á 116. Þá hafði lögregla afskipti af nokkrum unglingum sem voru úti eftir að útivistartíma þeirra lauk og var haft samband við foreldra þeirra sem sóttu þá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×