Innlent

Hafi hugsanlega verið ýtt

Nítján ára piltur hlaut alvarlega áverka á höfði þegar ekið var á hann á Hverfisgötu klukkan hálfellefu í gærkvöld. Hann var í litlum hópi ungmenna að skemmta sér, að sögn lögreglu, og var áfengi haft um hönd. Svo virðist sem pilturinn hafa annað hvort farið út á götuna eða verið ýtt. Ökumaður bílsins var 21 árs gömul stúlka. Enginn var handtekinn, en þrjú ungmenni voru flutt á lögreglustöð í áfalli. Pilturinn var fluttur á slysadeild og þaðan á gjörgæslu. Vakthafandi læknir á heila- og taugaskurðdeild segir líðan hans stöðuga en ákveðið verði síðar í dag hvort hann þarf að gangast undir aðgerð. Mikil ölvun var í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld og nótt og höfðu laganna verðir í nógu að snúast, meðal annars við að ganga á milli manna sem slógust í borginni. Þá voru fimm teknir ölvaðir við akstur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×