Innlent

Búið að yfirheyra mann á Selfossi

Lögregla á Selfossi hefur nú sleppt manni sem handtekinn var á dansleik í nótt eftir að hann lagði til annars manns með hnífi. Að sögn lögreglu var árásarmaðurinn, sem var ölvaður þegar atvikið átti sér stað, yfirheyrður þegar ölvíman rann af honum og honum sleppt í kjölfarið. Málið fer nú til sýslumanns sem tekur ákvörðun um ákæru á hendur manninum. Sá sem lagt var til slasaðist lítillega á höfði og var hann færður undir læknishendur og voru saumuð nokkur sporið í höfuðið á honum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×