Sport

Rooney verður í banni gegn Lille

Manchester United verður án Wayne Rooney í leiknum gegn Lille í Meistaradeildinni annað kvöld, en liðið getur huggað sig við að Ryan Giggs kemur aftur inn í hópinn eftir að hafa misst af leiknum gegn Sunderland um helgina vegna tognunar á læri. Louis Saha og Wes Brown eru einnig nálægt því að snúa aftur úr meiðslum, en verða þó ekki klárir annað kvöld. Hópur Manchester United verður skipaður eftirtöldum leikmönnum: Van der Sar, Howard, O'Shea, Bardsley, Ferdinand, Silvestre, Pique, Smith, Fletcher, Scholes, Miller, Martin, Ronaldo, Giggs, Park, Van Nistelrooy, Rossi, Blake.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×