Innlent

Dæmd fyrir að aka á pilt

Kona á Akureyri var í dag dæmd til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar og svipt ökuleyfi í tvo mánuði fyrir að keyra yfir gatnamót á rauðu ljósi og aka á ungan pilt sem var á leið yfir gangbraut. Pilturinn brotnaði á fingri og lærlegg og hlaut aðra minni áverka. Atvikið átti sér stað í myrkri og úrkomu að morgni dags í janúar síðast liðnum. Dómari sagði akstur konunnar afar vítaverðan og þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi hæfilegan dóm.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×