Sport

Cissé líklegur gegn Anderlecht

Rafael Benitez segir vel koma til greina að nýta hungur franska framherjans Djibril Cissé með því að gefa honum tækifæri í byrjunarliðinu gegn Anderlecht í Meistaradeildinni annað kvöld, en liðin eigast við í G-riðli. "Anderlecht veit að það þarf að vinna þennan leik ef það á að eiga möguleika á að komast áfram í riðlinum og ef þeir leika sóknarbolta, getur vel verið að ég nýti mér það og setji Cissé í byrjunarliðið," sagði Benitez og bætti við að hann fagnaði harðri samkeppni um framherjastöðurnar í liði sínu. "Mikið hefur verið rætt um að samskipti okkar Cissé séu erfið, en þau eru fyrst og fremst fagleg og ef hann heldur áfram að leggja sig allan fram, mun hann fá fleiri tækifæri. Ef hinsvegar hinir framherjarnir spila líka vel, stend ég frammi fyrir erfiðu vali, en það er eitthvað sem maður sækist eftir sem knattspyrnustjóri," sagði Benitez.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×