Sport

Auðveldur sigur Chelsea

Chelsea burstaði Real Betis 4-0 á heimavelli sínum í kvöld. Ricardo Carvalho, Didier Drogba, Hernan Crespo og Joe Cole skoruðu mörk enska liðsins. Real Madrid valtaði yfir Rosenborg 4-1, eftir að hafa verið undir 1-0 í hálfleik. Það voru Jonathan Woodgate, Raul, Ivan Helguera og David Beckham sem skoruðu fyrir spænska liðið, Beckham gerði það síðasta beint úr glæsilegri aukaspyrnu. Liverpool lagði Anderlecht í Belgíu með marki frá Djibril Cissé, Porto vann Inter 2-0, og Rangers náðu aðeins markalausu jafntefli á heimavelli gegn Bratislava. AC Milan tókst ekki að leggja PSV á heimavelli sínum, leiknum lauk með markalausu jafntefli. Fenerbache og Schalke gerðu 3-3 jafntefli í æsilegum leik í Tyrklandi og Lyon lagði Olympiakos 2-1.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×