Innlent

Dæmdur fyrir fíkniefnasölu

Hass sem lögregla lagði hald á.
Hass sem lögregla lagði hald á.

Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi mann í gær til tíu mánaða fangelsisvistar fyrir að selja fíkniefni. Sjö mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára.

Maðurinn viðurkenndi að hafa keypt 70 til 90 grömm af amfetamíni og 750 grömm af hassi í nokkrum ferðum til Reykjavíkur í mars og apríl síðast liðnum. Efnið seldi hann að mestu á Akureyri. Maðurinn var líka dæmdur fyrir að hafa tvívegis verið tekinn með fíkniefni, kókaín, amfetamín og marijúana. Hann hefur fimm sinnum áður verið dæmdur fyrir fíkniefnabrot og braut skilorð með þessum síðustu brotum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×