Viðskipti innlent

Öflun kaupir stærsta seljanda Apple á Norðurlöndum

Öflun ehf., sem er með umboð fyrir Apple á Íslandi, hefur keypt 37,8 prósenta hlut í norska fyrirtækinu Office Line sem skráð er í kauphöllinni í Ósló. Office Line rekur sjö verslanir og þrettán söluskrifstofur í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi og er stærsti seljandi Apple-vara á Norðurlöndum, einkum til fyrirtækja og stofnana. Áætluð velta Office Line á þessu ári eru um fjórir komma níu milljðarar króna, en starfsmenn félagsins eru 140.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×