Erlent

Selur bítur nef af konu



Selur beit nefið af konu í dag við strendur Suður-Afríku þegar hún var að reyna að hjálpa honum aftur út í sjóinn. Selurinn hafði legið á sama stað síðan fyrir helgi en konan reyndi ásamt fleira fólki að koma selnum aftur út í sjóinn.

Nefið fannst stutt frá staðnum þar sem selurinn beit konuna en ekki verður hægt að græða það á hana aftur. Búist er við að konan fari í aðgerð síðar í vikunni. Mikið er um sel við strendur Höfðaborgar í Suður Afríku og laða þeir að fjölda ferðamanna. Þrátt fyrir að selirnir séu nokkuð vanir fólki þá geta þeir verið hættulegir ef fólk fer of nálægt þeim.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×