Lífið

Coca Cola verðmætasta vörumerki heims

Coca Cola er verðmætasta vörumerki heims að mati tímaritsins Business Week. Næst koma Microsoft, IBM, General Electric og Intel. Í sjötta sæti er svo finnska vörumerkið Nokia en eftir því sem best verður séð er ekkert annað norrænt vörumerki á listanum yfir þau hundrað verðmætustu. Toyota er verðmætasta merkið í bílaiðnaðinum, en næst því koma Mercedes Bens, BMW, Honda og Ford.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×