Sport

Auðveldur sigur Arsenal

NordicPhotos/GettyImages

Arsenal vann auðveldan 3-1sigur á Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í dag og Blackburn lagði Charlton nokkuð óvænt 4-1. Þá vann Fulham sigur á Manchester City 2-1, Newcastle lagði Birmingham 1-0 og West Ham vann West Brom 1-0.

Thierry Henry skoraði tvö mörk fyrir Arsenal og Robin van Persie eitt, en Alan Stubbs minnkaði muninn fyrir Sunderland.

Þeir Brett Emerton, Paul Dickov, Morten Gamst Pedersen og Craig Bellamy skoruðu mörk Blackburn, en Brian Hughes minnkaði muninn fyrir Charlton.

Emre gerði sigurmark Newcastle gegn Birmingham á 77. mínútu. Steed Malbranque gerði bæði mörk Fulham í sigrinum á Manchester City, en Lee Croft minnkaði muninn. Heiðar Helguson lék síðustu fimmtán mínúturnar með Fulham. Gamla brýnið Teddy Sheringham skoraði sigurmark West Ham í sigrinum á WBA á 57. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×