Sport

Dómarinn kostaði okkur leikinn

David O´Leary var brjálaður eftir tapið í dag og kenndi dómaranum um allt saman
David O´Leary var brjálaður eftir tapið í dag og kenndi dómaranum um allt saman NordicPhotos/GettyImages

David O´Leary, knattspyrnustjóri Aston Villa, kenndi dómaranum um tapið fyrir Liverpool í dag og sagði að vítaspyrnudómurinn undir lokin hefði verið þvættingur. Steven Gerrard skoraði úr spyrnunni og í kjölfarið bætti Liverpool við öðru marki og kláraði leikinn.

Steve Bennett dómari dæmdi Liverpool vítaspyrnuna umdeildu eftir að honum þótti Liam Ridgewell halda Peter Crouch innan teigs. "Mér þótti þetta ekki vera vítaspyrna, en hún breytti leiknum. Dómarinn kostaði okkur leikinn, punktur," sagði O´Leary fúll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×