Sport

Ánægður þrátt fyrir tapið

NordicPhotos/GettyImages

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagðist stoltur af baráttu sinna manna á Old Trafford í dag, þrátt fyrir að liðið tapaði sínum fyrsta leik í deildarkeppninni í háa herrans tíð. Hann vildi þó ekki gera of mikið úr möguleikum Manchester United í baráttunni um meistaratitilinn.

"Ég er ósáttur við tapið, en ánægður með strákana og við áttum skilið að vinna í dag. United varðist vel og mér sýnist framtíðin nokkuð björt hjá þeim, en þeir eiga ekki möguleika á að veita okkur verðuga keppni í baráttunni um titilinn og ég er viss um að þeir væru til í að hafa sætaskipti við okkur í deildinni," sagði Mourinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×