Sport

Æsileg barátta um annað sætið

Petter Solberg á Subaru hefur aðeins 0,2 sekúndna forskot á Gronholm í Ástralíu
Petter Solberg á Subaru hefur aðeins 0,2 sekúndna forskot á Gronholm í Ástralíu NordicPhotos/GettyImages
Petter Solberg og Marcus Grönholm há nú mikið einvígi um annað sætið í stigakeppni ökumanna á heimsmeistaramótinu í ralli. Nú stendur Ástralíurallið sem hæst og þar hefur Solberg nauma forystu eftir fyrstu tvær sérleiðirnar. Þeir félagar eru hnífjafnir í öðru sæti stigakeppninnar með 71 stig, en eru þó 56 stigum á eftir heimsmeistranum Sebastien Loeb sem þegar hefur tryggt sér titilinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×