Innlent

Átta bítast um efsta sæti

Frá Kópavogi.
Frá Kópavogi.

Prófkjör Framsóknarmanna í Kópavogi hófst klukkan tíu í morgun. Fjórtán eru í framboði og þar af átta sem gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar sem haldnar verða næsta vor.

Kosið er í Smáraskóla til klukkan átta í kvöld og er prófkjörið opið öllum Kópavogsbúum sem verða orðnir átján ára þegar bæjarstjórnarkosningar verða haldnar næsta vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×