Sport

Ég grenja ekki þó ég tapi

Jose Mourinho segist ekki grenja þó hann tapi leik
Jose Mourinho segist ekki grenja þó hann tapi leik NordicPhotos/GettyImages

Jose Mourinho segir að Chelsea muni tvímannalaust verja titil sinn í ensku úrvalsdeildinni í vor og blæs á orð kollega síns hjá Arsenal, sem sagði að toppbaráttan hefði opnast upp á gátt eftir að Chelsea tapaði fyrir Manchester United.

"Ég er ekki knattspyrnustjóri sem fer að grenja ef hann tapar, ég einbeiti mér að því hvað fór úrskeiðis og finn lausnina. Það er engin skömm í því að tapa. Leikurinn við Manchester United var minn 50. við stjórnvölinn hjá liðinu, við urðum meistarar í fyrra og erum með góða forystu í deildinni núna eftir að hafa verið taplausir í 40 leiki, þó tölfræði sé svosem ekki allt," sagði Portúlgalinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×