Innlent

Dæmdur fyrir vopnað rán

Hilmar Ragnarsson, sem ásamt öðrum manni framdi vopnað rán í SPRON í Hátúni fyrir tæpum tveimur árum, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi. Vitorðsmaður hans er ófundinn.

Tvímenningarnir réðust inn í sparisjóðinn vopnaðir rörbút, fóru að tveimur gjaldkerastúkum, brutu þar gler og hirtu fé úr skúffum. Þá veittust þeir að viðskiptavini sem var í bankanum. Hilmar er dæmdur til að greiða honum 300 þúsund krónur í bætur og bankanum liðlega 700 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×