Innlent

Eldur í gardínum út frá sprittkerti

Lögregla og slökkvilið voru kölluð að húsi á Seltjarnarnesi í gærkvöld en þar hafði kviknað í gardínum út frá sprittkerti. Betur fór en á horfðist og höfðu íbúar í húsinu að mestu náð að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á vettvang. Eins og gefur að skilja eyðilögðust gardínurnar og þá skemmdust gluggakarmarnir eitthvað auk þess sem nokkurt sót var í íbúðinni. Lögregla og slökkvilið brýna fyrir fólki að gæta vel að kertum og kertaskreytingum, en nú þegar skammdegið hefur skollið á eykst notkun þeirra töluvert með tilheyrandi hættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×